Jarðneskar leifar Fidel Castro, fyrrverandi leiðtoga Kúbu sem lést á dögunum, hafa verið jarðsettar í grafreitnum Santa Ifigenia í borginni Santiago á Kúbu. Níu daga þjóðarsorg í landinu er nú lokið þegar jarðarför Castros hefur farið fram.
Íbúar fylktu liði á götur Santiago-borgarinnar til að sjá líkfylgd Castros í kirkjugarðinn en aska hans hvílir við hlið frelsishetju Kúbu, Jose Marti (1853 – 1895). Borgin er kunn fyrir að vera vagga kúbönsku uppreisnarinnar sem átti sér stað 1953. Í borginni í gær var haldin minningarathöfn um Castro.
Frétt mbl.is: Minntust Fidels Castro í Santiago
„Athöfnin var mjög látlaus og engar ræður voru haldnar,“ sagði Segolene Royal, umhverfisráðherra Frakklands, sem var viðstödd þegar ösku fyrrverandi leiðtogans var komið fyrir í grafreitnum. Þetta kemur fram á vef BBC.
Eftir lát Castros sagðist eftirlifandi bróðir hans, Raul Castro, forseti Kúbu, „lofa að standa vörð um föðurlandið og jafnaðarstefnuna.“