Allir 48 sem voru um borð í farþegaþotu Pakistan International Airlines (PIA) sem hrapaði til jarðar í norðurhluta Pakistan létu lífið.
„Enginn lifði af,“ sagði talsmaður flugmálayfirvalda í Pakistan. Danyal Gilani, talsmaður Pakistan International Airlines, staðfesti það. Vélin var að fljúga frá Chitral til Íslamabad og missti samband við flugturninn.
Umrætt flugfélag hefur áður verið gagnrýnt fyrir að hafa öryggismál í ólesti. Árið 2006 fórst vél frá flugfélaginu með þeim afleiðingum að 44 létust.
Frétt mbl.is: Farþegaþota fórst í Pakistan