Donald Trump tilkynnti í dag að Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, myndi ekki verða hluti af ríkisstjórn hans þegar Trump tekur opinberlega við sem forseti Bandaríkjanna í næsta mánuði.
Giuliani hefur af mörgum verið talinn líklegur til að verða tilnefndur í ráðherraembætti. Hann var meðal þeirra sem taldir voru líklegir til að verða utanríkisráðherra í nýrri stjórn Trumps en nú er ljóst að Giuliani hefur lýst því yfir að hann muni ekki gefa kost á sér.
Auk Giuliani hafa Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, David Petraeus, fyrrverandi forstjóri CIA, Bon Corker, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings og John Bolton, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum verið nefndir sem hugsanlegir kandídatar.
„Rudy [Giuliani] hefði verið frábær hluti af ríkisstjórninni. Ég virði hins vegar og skil ákvörðun hans um að vilja starfa áfram í einkageiranum,“ sagði Trump í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna málsins.
„Ég gekk til liðs við kosningabaráttuna vegna þess að ég elska landið og hef verið vinur Trumps í 28 ár. Ég efast ekki um að hann verður frábær forseti. Þetta snýst ekki um mig, heldur það sem er best fyrir landið,“ sagði Giuliani meðal annars í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.