Katrín hertogaynja af Cambridge, bar eina eftirlætis kórónu Díönu prinsessu við hátíðlega athöfn í Buckingham-höll í gær. Þá tók breska konungsfjölskyldan á móti breskum stjórnarerindrekum í höllinni.
Allir voru í sínu fínasta pússi en þrjár kynslóðir kóngafólks tóku á móti gestunum: Elísabet og Filippus, Karl og Camilla og Vilhjálmur og Katrín.
Hingað til hefur móttakan verið haldin utan sviðsljóss fjölmiðla en í gær fengu ljósmyndarar að mynda konungsfjölskylduna við upphaf hennar.
Kórónan sem Katrín bar vakti vitanlega mikla athygli. María drottning, amma Elísabetar, var sú fyrsta í fjölskyldunni sem setti kórónuna upp. Elísabet fékk hana síðar og lánaði hana til Díönu. Kórónan var í uppáhaldi hjá Díönu og hún bar hana margsinnis.
Kórónan er skreytt perlum og demöntum.
Frétt Huffington Post um málið.