Stríðsglæpir í Palmyra

Hringleikahúsið hefur nú verið jafnað við jörðu.
Hringleikahúsið hefur nú verið jafnað við jörðu. AFP

Eyðilegging vígasveita Ríkis íslams á ómetanlegum menningarverðmætum í sýrlensku borginni Palmyra er stríðsglæpir, segir framkvæmdastjóri UNESCO, Irina Bokov.

Nýjar fréttir hafa borist af eyðileggingu vígasveitanna á menningarverðmætum í borginni fornu. Meðal annar hafi þær jafnað ómetanlega rómverska minnisvarða við jörðu og hringleikahús borgarinnar frá tímum Rómverja.

Áður höfðu vígasamtökin jafnað ómetanlegar minjar við jörðu, svo sem Baal Sham­in-hofið og Bel-hofið í Pal­myra.

Pal­myra var vin í miðju einsk­is­mannslandi og hef­ur verið kölluð „Perla eyðimerk­ur­inn­ar“. Nafn henn­ar merk­ir Pálma­borg og hún er kennd við döðlupálma sem eru enn al­geng­ir á þess­um slóðum. 

Pal­myra er getið á töfl­um frá 19. öld fyr­ir Krist. Borg­in varð snemma mik­il­væg­ur áningarstaður úlf­alda- og vagna­lesta á leiðinni milli Miðjarðar­hafs og Persa­flóa og einnig á Silki­leiðinni til Kína og Ind­lands. Blóma­skeið borg­ar­inn­ar hófst á fyrstu öld eft­ir Krist, þegar hún var hluti af Róma­veldi, og stóð í fjór­ar ald­ir. Henni tók síðan að hnigna og hún eyðilagðist að lok­um í jarðskjálfta árið 1089.

Pal­myra var einn af vin­sæl­ustu ferðamanna­stöðum Sýr­lands áður en stríðið í land­inu hófst árið 2011. Á ári hverju komu þangað um 150.000 er­lend­ir ferðamenn til að skoða forn­minjarn­ar, m.a. fal­leg­ar stytt­ur, meira en þúsund súl­ur og greftr­un­ar­svæði með um 700 graf­hýsi.

 Irina Bokova segir tjónið ómetanlegt fyrir sýrlensku þjóðina og ekkert annað en stríðsglæpi.

„Þetta nýja högg gegn menningarverðmætum... sýnir að menningarhreinsanir eru leiddar af öfgafullum ofbeldismönnum sem ætla sér að eyða bæði mannslífum og sögulegum fornminjum í þeim tilgangi að svipta sýrlensku þjóðina fortíð sinni og framtíð,“ segir Bokova. 

Ríki íslams endurheimti Palmyra, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, 11. desember og átti eyðileggingin sem nú er greint frá sér stað í byrjun janúar. 

Þessar minjar hafa verið eyðilagðar.
Þessar minjar hafa verið eyðilagðar. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert