36 létust í lestarslysi

Enn er unnið að því að bjarga fólki úr braki lestar sem fór út af sporinu á Suður-Indlandi í gær. 36 hafa fundist látnir og óttast er að talan eigi eftir að hækka.

Lögreglan rannsakar hvað olli slysinu og er jafnvel talið að maóistar hafi átt við járnbrautarteinana með þessum skelfilegu afleiðingum. Jagdalpur-Bhubaneswar hraðlestin fór út af sporinu klukkan 23 að staðartíma í gær, klukkan 17:30 að íslenskum tíma.

Alls hafa um 50 verið fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert