Óttast að Evrópusambandið liðist í sundur

Maður veifar fána Evrópusambandsins við breska þinghúsið. Efnahagsráðherra Þýskalands óttast …
Maður veifar fána Evrópusambandsins við breska þinghúsið. Efnahagsráðherra Þýskalands óttast að ESB kunni að liðast í sundur. AFP

Evrópusambandið kann að liðast í sundur ef hægri öfgaflokkar fara með sigur af hólmi í þingkosningum sem fram fara í Frakklandi og Hollandi síðar á þessu ári.

Sigmar Gabriel efnahagsráðherra Þýskalands varaði í dag þýskan þingheim við þessum möguleika að því er Reuters-fréttastofan greinir frá.

„Frönsku forsetakosningarnar nú í vor geta reynst sárar og afdrifaríkar kosningar fyrir Evrópu,“ sagði Gabriel við neðri deild þýska þingsins.

„Eftir Brexit í fyrra, og fari óvinir Evrópu með sigur í kosningum í Hollandi eða Frakklandi nú,  þá kunnum við að standa frammi fyrir ógn gegn stærsta þjóðmenningarverkefni 20. aldarinnar, þ.e. að Evrópusambandið liðist í sundur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert