Talsmaður Danska þjóðarflokksins, Martin Henriksen, segir að flokkurinn fari fram á að til þess að innflytjendur geti kallað sig Dani verði þeir að halda jól og páska hátíðlega.
Hann segir að það myndi að minnsta kosti koma þeim á rétta braut ef þeir myndu sækja kirkju. Með því að halda upp á kristilegar trúarhátíðir komist innflytjendur nær því að skilja menningu meirihluta þeirra sem búa í Danmörku.
Til þess verður fólk að skilja hvað felst í kristinni trú og hvað hún þýðir fyrir danska þjóð. „Þú verður að taka þátt í þeim hluta menningar okkar til þess að upplifa þá hluti sem binda meirihluta landsmanna saman í gegnum sameiginlegar hefðir og helgisiði,“ segir Henriksen.
Hann ráðleggur innflytjendum að mæta í kirkju, til að mynda á páskum, og sjá hvað þetta snýst um.
Aðrir flokkar hafa tekið fálega í hugmyndir Danska þjóðarflokksins og nefnt sem dæmi að það geti hreinlega verið hættulegt að tengja það saman – að vera Dani og trúarbrögð.