Vitaly Churkin, sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum, er látinn, 64 ára að aldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá rússneska utanríkisráðuneytinu.
Í tilkynningunni kemur fram að Churkin hafi verið bráðkvaddur en ekki er greint frá því hvernig hann dó.
„20. febrúar lést fulltrúi Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum, Vitaly Churkin, óvænt í New York,“ segir í tilkynningunni.