Spænska lögreglan er með einn mann í varðhaldi eftir að hún hleypti af skotum á pallbíl sem keyrði á fullri ferð á móti umferð í Barcelona fyrr í dag. Á palli bílsins var fullt af gashylkjum.
„Bílstjórinn sem stal bifreiðinni í Barcelona hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Þetta var ekki hryðjuverkaárás,“ sagði Juan ignacio Zoido, innanríkisráðherra Spánar, á Twitter.
Lögreglan staðfesti að hún hefði handsamað bílstjórann en hann er sænskur. Talsmaður lögreglunnar staðfesti við AFP-fréttastofuna að skotum hefði verið hleypt af.
Sjónarvottur sagði að bílstjórinn hefði hunsað fólk sem öskraði á hann að stöðva þar sem hann ók á móti umferð. „Hann hló þegar fólk öskraði á hann og sýndi þeim miðfingurinn,“ sagði sjónarvottur við AFP.
Lögregla hefur ekki greint frá því hvort einhverjir hafi slasast en henni tókst að stöðva bílinn nálægt strandsvæði Barcelona.
Man arrested in Barcelona after driving a stolen truck, carrying butane gas at high speed against the flow of traffic on a major road pic.twitter.com/wgtXsQeDar
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) February 21, 2017