Þýskaland, öflugasta hagkerfi Evrópusambandsins, verður að leggja meira að mörkum til þess að hjálpa öðrum ríkjum sambandsins. Þetta sagði Pierre Moscovici, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í dag.
Fram kemur í frétt AFP að Þjóðverjar hafi hagnast á gríðarlegum jákvæðum viðskiptahalla undanfarin ár í viðskiptum við önnur ríki Evrópusambandsins. Ráðamenn þeirra hafa þrýst á þýsk stjórnvöld að styðja við hagkerfi ríkjanna með því að fjárfesta meira heimafyrir og auka þannif neyslu og innflutning frá öðrum ríkjum.
Moscovici sagði þessa stöðu mála engum í hag. Ekki einu sinni þýska hagkerfið. Það hefði aftur neikvæð áhrif á evrusvæðið í heild sinni. Framkvæmdastjórnin myndi fylgjast náið með stöðunni enda væri mikliðí húfi fyrir evrusvæðið.