Lögreglan í New York mun reyna að hafa uppi á eiganda dróna til yfirheyrslu en flygildinu var flogið inn um glugga á háhýsi í borginni.
Drónanum var flogið á glugga íbúðar á 27. hæð í Waterside Plaza-turninum á laugardag. Úr turninum er útsýni yfir East River.
Í íbúðinni býr 66 ára gömul kona. Hún var í tölvunni er drónanum var flogið á gluggann og lenti skömmu síðar rétt við fætur hennar inni í íbúðinni. Konan slapp án meiðsla.
Lögreglan hefur lagt hald á drónann en hefur enn ekki komist að því hver eigandinn er.