Fjórir menn sem taldir eru tilheyra hryðjuverkasamtökum al-Qaeda, létust í loftárás í suðurhluta Jemen í dag, að því er öryggissveitir í landinu segja. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að herða á loftárásum sínum í þessu stríðshrjáða landi.
Tvö flugskeyti höfðu farartæki í útjaðri bæjarins Mudiyah í Abyan-héraði. Fjórir voru í bílnum og létust þeir allir.
Frétt mbl.is: Hvað gengur á í Jemen?
Fyrir tveimur vikum gaf ríkisstjórn Donalds Trump leyniþjónustunni sinni, CIA, leyfi til að hefja árásir með drónum á skotmörk sem tengjast öfgahópum í Miðausturlöndum.
Frá því í byrjun mánaðarins hafa Bandaríkjamenn gert fjölda árása á skotmörk sem tengjast al-Qaeda á Arabíuskaganum, aðallega í Jemen.
Á fyrstu þremur dögum árásanna er talið að um 22 menn, sem taldir eru tengjast AQAP, klofningshópi al-Qaeda.
Á meðan borgarastríð milli uppreisnarmanna og stjórnarhersins hefur geisað undanfarin misseri hafa öfgasamtök á borð við Ríki íslams og al-Qaeda nýtt sér ástandið og eflt starfsemi sína og yfirráð í Jemen. Þau hafa aðallega komið sér fyrir í suður- og austurhluta landsins. Hútar, vopnuð samtök stórs minnihlutahóps, sem berjast við stjórnarherinn og bandalagsríki, hefur svo með yfirráð á stórum svæðum í norðri.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum telja að AQAP sé hættulegasta grein al-Qaeda og vilja því með öllum ráðum verjast frekari uppgangi hennar.