Bandaríkjaher hefur fellt Abdurakhmon Uzbeki, liðsmann Ríkis íslams, sem er sagður hafa borið ábyrgð á árás í næturklúbb í Istanbúl 1. janúar síðastliðinn þar sem 39 manns létust.
„Við munum ná þér hvar sem þú ert niðurkominn,“ sagði Brett McGurk, starfsmaður Bandaríkjahers, í Twitter-færslu þar sem hann staðfestir lát Uzbeki. McGurk stýrir aðgerðum gegn Ríki íslams í Írak og Sýrlandi.
Uzbeki lést 6. apríl í borginni Mayadin í austurhluta Sýrlands.
Uzbeki er sagður hafa verið náinn samstarfsmaður Abu Bakr al-Baghdadi sem er einn helsti leiðtoga Ríki íslams. Þeir eru sagðir hafa stýrt árásunum í næturklúbbnum.
Confirmed: death of senior #ISIS terrorist & #Baghdadi associate via US military operation near Mayadin, #Syria. We will reach u anywhere. pic.twitter.com/Y1MYBwx67o
— Brett McGurk (@brett_mcgurk) April 21, 2017