Flestir hefðu hætt 30 árum fyrr

Bresku konungshjónin - myndin er tekin árið 2013.
Bresku konungshjónin - myndin er tekin árið 2013. AFP

Tilkynnt var fyrr í mánuðinum að hertoginn af Edinborg, Filippus drottningarmaður, myndi hætta að sinna konunglegum skyldum sínum frá og með ágúst næstkomandi. Þá verður hann orðinn 96 ára en hann á afmæli 10. júní næstkomandi og er því ekki nema eðlilegt að draga aðeins úr vinnu.

AFP

Áhersla var lögð á að ákvörðun hans um að draga úr skyldum sínum væri ekki heilsunnar vegna. „Hertoganum fannst þetta vera rétti tíminn. Hann er nærri 96 ára og flestir hefðu hætt 30 árum fyrr,“ var haft eftir konunglegum aðstoðarmanni í Guardian.

Elísabet Englandsdrottnings og Filippus skemmta sér konunglega við að fylgjast …
Elísabet Englandsdrottnings og Filippus skemmta sér konunglega við að fylgjast með danssýningu í Sierra Leone. AFP

Forsætisráðherrann, Theresa May, sagði að Filippus hefði veitt drottningunni „stöðugan stuðning“ og Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins og lýðveldissinni, lofaði „skýra sýn hans á opinberar skyldur“.

Hefur staðið þétt við hlið Elísabetar

Vefur Telegraph tók saman nokkur atriði sem allir ættu að vita um hertogann af Edinborg, sem hefur staðið þétt við hlið Elísabetar Bretadrottningar í nærri 70 ár. Enda er hollusta hans við drottninguna eitt af því sem blaðið nefnir. Hjónaband þeirra hefur verið farsælt þrátt fyrir að persónuleikar þeirra virðist ólíkir. Litið er á Filippus sem ævintýragjarnan og öran á meðan drottningin sé varkár og hefðbundin. Ef guð lofar halda þau upp á platínubrúðkaup sitt í nóvember.

Konungshjónin með börnum sínum Karli og Önnu.
Konungshjónin með börnum sínum Karli og Önnu. AFP

Hann hefur helgað líf sitt opinberum skyldum. Hann hefur mætt á þúsundir viðburða í Bretlandi og víðs vegar um heiminn. Hann hefur stutt við ótalmörg góðgerðarsamtök.

Hann bjó til verðlaun kennd við hertogann af Edinborg árið 1956. Þau eru ætluð til að verðlauna afburðafólk á aldrinum 14-24 ára. Þau þykja hafa skilað miklum árangri og hvatt fjölmargt ungt fólk áfram.

Leiðist umstang

Filippusi leiðist umstang, hann er ekki mikið að hugsa um arfleifð sína, hann vill ekki að honum sé vorkennt í veikindum og að ósk hans er reynt að halda hátíðarhöldum í kringum afmæli hans í lágmarki.

Mynd frá árinu 1986.
Mynd frá árinu 1986. AFP

Eins og vitað er þá er drottningin höfuð ríkisins en Filippus er hinsvegar höfuð konungsfjölskyldunnar. Hann þykir hafa verið ákveðinn faðir og stjórnar bak við luktar dyr. Hann sér til dæmis um fjölskyldugrillin þegar konungsfjölskyldan fer í frí í Balmoral-kastala.

Áhugamaður um hestvagnaakstur

Hertoginn hefur mikinn áhuga á hestvagnaakstri og hefur keppt í slíkum. Hann gaf sitt fyrsta viðtal í vikunni eftir að hann tilkynnti breyttar skyldur sínar og var það einmitt um þetta málefni.

Filippus.
Filippus. AFP

Hann fór að stunda íþróttina um fimmtugt eftir að hann ákvað að hætta að keppa í póló. Alla tíð síðan hefur hann unnið að því að gera hestvagnaakstur að íþrótt í Bretlandi og hefur keppt í honum á alþjóðavettvangi.

Heilsað upp á fíl í dýragarði.
Heilsað upp á fíl í dýragarði. AFP

Hann hefði getað orðið æðsti yfirmaður sjóhersins ef hann hefði ekki kvænst Elísabetu. En hann þurfti að gefa feril sinn í hernum upp á bátinn og við tóku konunglegar skyldur. Engu að síður hefur hann alltaf haldið góðum tengslum við herinn og ýmsar stofnanir tengdar hernum.

Hann hefur verið táknrænn yfirmaður Konunglega sjóhersins frá 1953 en búist er við að Harry prins muni taka við af honum.

Vísindi, umhverfi og íþróttir

Hann er velgjörðarmaður margra stofnana og góðgerðarsamtaka. Þegar hann varð níræður hætti hann sem formaður eða velgjörðarmaður um tólf félaga en hann hefur samt sem áður tengingu við um 800 félög. Hann hefur alltaf sýnt sérstakan áhuga á vísindum og tæknirannsóknum, iðnaði, umhverfisvernd og íþróttum.

Filippus ásamt söngkonunni Kylie Minogue.
Filippus ásamt söngkonunni Kylie Minogue. AFP

Hertoginn er líka þekktur fyrir að vera fyndinn og jafnvel segja eitthvað óviðeigandi eins og sjá má á samantekt hér til hliðar. Filippus er sannarlega litríkur persónuleiki sem margir munu sakna úr sviðsljósinu. Ekki er þó öll von úti enn því þrátt fyrir að Filippus ætli almennt að hætta konunglegum skyldum sínum hafa talsmenn Buckingham-hallar sagt að hertoginn mæti á opinbera viðburði „við og við“. Drottningin heldur áfram að sinna konunglegum skyldum sínum með hjálp yngri meðlima konungsfjölskyldunnar.

Nýleg mynd af Filippusi.
Nýleg mynd af Filippusi. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert