Skar typpið af meintum nauðgara

Frá árlegri hátíð í Kawasaki í Japan í síðasta mánuði …
Frá árlegri hátíð í Kawasaki í Japan í síðasta mánuði til heiðurs getnaðarlimum. AFP

Indversk kona skar af getnaðarlim manns sem hún sagði að hafi ætlað að nauðga henni á heimili hennar í ríkinu Kerala í suðurhluta landsins.

Konan er 23 ára nemi en maðurinn, sem er 54 ára, hafði sagt fjölskyldu hennar að hann væri trúarleiðtogi.

„Hún notaði hníf í sjálfsvörn og skar getnaðarlim hans af,“ sagði lögreglustjórinn G. Sparjan Kumar í samtali við AFP-fréttastofuna.

Maðurinn sem heitir Hari Swami var fluttur á sjúkrahús og er ástand hans alvarlegt, að sögn lögreglustjórans.

Fjölmiðlar frá Kerala greindu frá því að ástand hans væri stöðugt eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð.

Að sögn konunnar hafði maðurinn beitt hana kynferðislegu ofbelti í þó nokkur ár. Maðurinn var þegar á sakaskrá lögreglunnar fyrir kynferðisbrot.

„Konan sagði okkur að foreldrar hennar hefðu treyst Swami í blindni og að hann hafi oft komið í heimsókn til að framkvæma sérstakar athafnir og gista í húsi þeirra, þar sem hann réðst á hana,“ sagði Kumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert