Átta ára stúlka, Saffie Rose Roussos, sem var með móður sinni, Lisu Roussos, og systur, Ashlee Bromwich, á tónleikum Ariönu Grande, er meðal þeirra 22 sem létust í sjálfsvígsárásinni í Manchester Arena-tónleikahöllinni í gærkvöldi.
Móðir Saffie og systir særðust báðar í árásinni og hafa fundist hvor á sínu sjúkrahúsinu. 59 manns særðust í árásinni, þar á meðal 12 börn undir 16 ára aldri. Fólkið nýtur aðhlynningar á átta sjúkrahúsum í borginni.
Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýstu yfir ábyrgð á árásinni í morgun.
Saffie Rose er annað fórnarlambið sem er nafngreint af þeim sem létust í árásinni. Áður hafði verði greint frá því að Georgina Callander, 18 ára félags- og heilsufræðinemi, hefði einnig látist.
„Saffie var einfaldlega gullfalleg lítil stúlka í allri merkingu þessa orðs. Hún var elskuð af öllum og við munum minnast hlýju hennar og góðvildar. Saffie var hljóð og hæversk, en líka með góða sköpunargáfu,“ hefur Guardian eftir Chris Upton, skólastjóra Tarleton-grunnskólans, þar sem Saffie var nemandi.
Sagði hann fréttirnar af láti hennar vera „mikið áfall“. „Sú hugsun að einhver geti farið á tónleika og ekki komið aftur heim er átakanleg.“