Margir hafa lýst áhyggjum sínum af því að nýtt flugmóðurskip Bretlands, HMS Queen Elizabeth, kunni að vera berskjaldað fyrir tölvuárásum eftir að greint var frá því að tölvukerfi þess keyrði á stýrikerfinu Windows XP. Stýrikerfið þykir úrelt þar sem hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft er hætt að senda frá sér öryggisuppfærslur vegna þess.
Frétt mbl.is: Miklar tölvuárásir á bresk sjúkrahús
Herskipið, sem er það stærsta sem smíðað hefur verið fyrir breska sjóherinn, lét úr höfn í gær en til stendur að prófa skipið á hafi úti. Stefnt er að því að skipið verði tilbúið til notkunar síðar á þessu ári. Blaðamönnum var boðið að koma um borð áður en það hélt af stað og veittu þeir því athugli að á skjám skipsins kom fram að keyrt væri á Windows XP.
Stutt er síðan tölvuárás var gerð meðal annars á heilbrigðiskerfi Bretlands þar sem gögn voru tekin í gíslingu og krafist lausnargjalds en tölvur sem viðkvæmar voru fyrir árásinni áttu það sameiginlegt að keyra á umræddu stýrikerfi. Sérfræðingar á sviði tölvuöryggismála hafa varað við því að fyrir vikið gæti flugmóðurskipið verið berskjaldað fyrir tölvuárásum.
Frétt mbl.is: Microsoft hættir stuðningi við Windows XP
Haft er eftir Alan Woodward, prófessor í tölvufræði við Háskólann í Surrey, að sé Windows XP notað sem stýrikerfi um borð í herskipinu fylgi því gríðarleg áhætta. Spyr hann enn fremur hvers vegna í ósköpunum tekin hafi verið ákvörðun um að setja úrelt stýrikerfi upp í nýju skipi sem gert væri ráð fyrir að yrði í notkun hjá sjóhernum áratugum saman.
Gefin hefur verið sú skýring að umræddur hugbúnaður hafi verið það besta sem völ hafi verið á þegar flugmóðurskipið var hannað árið 2004. Enn fremur að til standi að uppfæra hugbúnað skipsins innan áratugar. Breskir ráðamenn hafa fullyrt að öryggi skipsins sé tryggt og að sérfræðingar í tölvuvörnum verði um borð til þess að tryggja varnir þess.
Fréttavefur breska dagblaðsins Daily Telegraph fjallar um málið.