Eftirlitsmyndavélar í Reading í Englandi náðu myndskeiði af því þegar strætisvagn keyrði á mann á laugardaginn. Maðurinn stóð upp eftir þungt högg og fór inn á krá. BBC greinir frá.
Simon Smith segist vera heppinn að vera á lífi eftir að strætó keyrði á hann þar sem hann gekk yfir götu. Myndskeið sýnir vagninn keyra á Smith, sem kastaðist til við höggið.
Smith lá í smástund í jörðinni áður en hann stóð upp og gekk inn á krá. Framkvæmdastjóri strætó í Reading segir að málið sé til rannsóknar en rúða brotnaði í strætisvagninum í árekstrinum.
guy gets hit by a bus and manages to get back up again pic.twitter.com/mHksG1BfEn
— #BREAKINGNEWS (@UrgentNews5) June 27, 2017