Norður-Kórea hótaði því í dag að beita dauðarefsingu gegn fyrrverandi forseta Suður-Kóreu, Park Geun-Hye vegna gruns um að ætlunin hafi verið að ráða leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-Un, af dögum.
Samkvæmt frétt norðurkóreska miðilsins Korean Central News Agency lagði Park fram áætlun um hvernig ætti að útrýma leiðtoga Norður-Kóreu.
„Við lýsum því yfir að við munum beita dauðarefsingu gegn svikaranum Park Geun Hye,“ kom fram í yfirlýsingu frá saksóknurum og öryggisráðuneyti Norður-Kóreu. Þar kom einnig fram að Lee Byung-Ho, fyrrverandi yfirmanns suðurkóresku leyniþjónustunnar, biðu svipuð örlög.
Þau „geta aldrei beðist vægðar þó að þau myndu mæta dauðdaga hunds hvenær sem er, hvar sem er og hvernig sem er frá og með þessari stundu,“ kom enn fremur fram í yfirlýsingu Norður-Kóreumanna.
Áður höfðu stjórnvöld í Norður-Kóreu krafist framsals yfirmanns leyniþjónustu Suður-Kóreu, kínversks athafnamanns og ónefndra bandarískra leyniþjónustufulltrúa í tengslum við meint samsæri um að ráða Kim Jong-un af dögum.
Í febrúar sl. var hálfbróðir Kim, Kim Jong-Nam, myrtur af tveimur konum með taugaeiturefninu VX. Margir vilja meina að stjórnvöld í Pyongyang hafa lagt á ráðin um morðið.
Park var forseti Suður-Kóreu frá árinu 2013 og fram á mitt þetta ár. Hún er nú í haldi en hún hrökklaðist frá völdum eftir að hafa verið sökuð um spillingu í starfi.