Ranghvolfdi augunum yfir Pútín

Merkel og Pútín.
Merkel og Pútín. AFP

Angela Merkel Þýskalandskanslari virtist óhress með eitthvað sem Vladimir Pútín, forseti Rússlands, sagði við hana þegar þau ræddu saman í Hamborg þar sem leiðtogafundur G20-ríkja fer fram um helgina.

Merkel leit í aðra átt og ranghvolfdi augunum þegar Pútín tók til máls.

Breska dagblaðið Daily Telegraph greinir frá því að ekki sé vitað hvað Pútín og Merkel ræddu um en fyrr um daginn funduðu Pútín og Donald Trump Bandaríkjaforseti í fyrsta sinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert