Hartnær eitt af hverjum 10 ungbörnum fékk engin bóluefni árið 2016. Þau fóru þannig á mis við bólsetningar gegn þremur banvænum sjúkdómum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO).
Í heildina fengu 12,9 milljónir bara engin bóluefni á síðasta ári og misstu því að fyrsta skammtinum gegn sjúkdómum á borð við barnaveiki, stífkrampa og kíghósta. Aðrar 6,6 milljónir barna sem fengu fyrsta skammtinn af svokölluðu DTP-bóluefni kláruðu ekki meðferðina.
Frá árinu 1980 hefur Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna haldið utan um tölur yfir fjölda barna sem fá DTP á hverju ári. Í tilkynningu WHO segir að frá 2010 hafi hlutfall barna kláruðu bólusetningarmeðferð staðnað í 86%.
Aðeins 130 af 194 aðildarlöndum stofnunarinnar hafa náð markmiðinu sem nemur 90% en verst er ástandið í stríðshrjáðum löndum. Í átta löndum var hlutfallið undir 50%; Úkraínu, Mið-Afríkulýðveldinu, Miðbaugs-Gíneu, Nígeríu, Sómalíu, Suður-Súdan, Sýrlandi og Tsjad.
WHO metur að bóluefni komi í veg fyrir tvær til þrjár milljónir dauðsfalla á hverju ári.