Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við „efnahagslegum aðgerðum“ ef Nicolas Maduro, forseti Venesúela, nær fram ætlan sinni að breyta stjórnarskránni í átt til einræðis. Segir Trump Maduro vera „slæman leiðtoga sem dreymir um að vera einræðisherra“.
AFP fréttastofan greinir frá þessu.
„Bandaríkin munu ekki standa aðgerðarlaus á meðan Venesúela hrynur,“ sagði Trump í yfirlýsingu. „Ef stjórn Maduros samþykkir stjórnarskrárbreytingarnar þann 30. júlí munu Bandaríkin bregðast skjótt við með hörðum efnahagsaðgerðum.“
Rúmar sjö milljónir kjósenda hafa nú tekið þátt í óformlegri þjóðaratkvæðagreiðslu sem stjórnarandstaðan í Venesúela hefur staðið fyrir. Mikil mótmæli hafa verið í landinu undanfarna fjóra mánuði og hafa þau nú kostað um eitthundrað manns lífið.
Búist er við að stuðningsmenn Maduros sniðgangi þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem er ekki lagalega bindandi, og að mikil meirihluti þeirra sem taka þátt muni því greiða atkvæði gegn þeirri ætlan Maduros að breyta stjórnarskrá landsins í átt til einræðis.
Trump hrósaði stjórnarandstöðunni og kallaði aðgerðir hennar „sterkar og hugrakkar“.
Skelfing greip um sig þegar byssuskot heyrðust í hverfinu Catia í höfuðborginni Caracas. Stjórnarandstæðingar ásaka vopnaða hópa stuðningsmanna stjórnar Nicolasar Maduro, forseta Venesúela, um að standa að baki árásinni. Er hún sögð enn ein birtingarmynd þeirrar miklu spennu sem ríkir milli stjórnarandstöðunnar og forsetans.