Að minnsta kosti átta manns létu lífið, þar af eitt tveggja ára gamalt barn, þegar hraðbát hvolfdi við strönd Borneo við Indónesíu. Um borð í bátnum var 51 farþegi og var 22 þeirra bjargað, af þeim voru tveir þýskir ferðamenn. Óttast er að farþegar hafi fest inni í bátnum og tala látinna eigi eftir að hækka.
Fólkið var ekki í björgunarvestum þegar það stökk útbyrðis, að sögn sjónarvotta. Hraðbáturinn hafði eingöngu siglt í um 10 mínútur frá höfninni þegar atvikið átti sér stað.
Ekki mikill öldugangur var í sjónum en talsverð bátaumferð var við höfnina þegar bátnum hvolfdi sem gæti mögulega verið ástæða fyrir því að stór alda skall á honum með fyrrgreindum afleiðingum.
Íbúar á eyjunum 17.000 sem og ferðamenn þurfa að reiða sig á báta sem samgöngutæki en öryggi um borð í þeim er talsvert ábótavant.