Lögreglan í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum hefur nú biðlað til almennings um upplýsingar sem hjálpað geta til við rannsókn á óhugnanlegu morði á 12 ára gamalli stúlku í borginni.
„Þetta er hræðilegt og mjög hrottalegt mál. Ég hef aldrei nokkurn tímann séð neitt jafn hrottafengið á mínum starfsferli,“ sagði varðstjórinn David Kautzman á blaðamannafundi í gær.
Hin 12 ára gamla Yhoana Arteaga fannst látin á heimili sínu þann 10. ágúst síðastliðin. Fjölskylda hennar sá hana síðast á lífi um hádegi þann dag, en seinnipartinn fékk móðir hennar skilaboð frá henni þar sem hún sagði einhvern vera að banka á dyr heimilisins. Klukkutíma síðar kom móðirin heim með tvö systkini stúlkunnar, og fann dóttur sína látna.
Bráðabirgðaniðurstöður krufningar leiddu í ljós að stúlkan hafði verið myrt með hrottafengnum hætti. Rannsakendur málsins telja stúlkuna hafa þekkt morðingja sinn.
„Án þess að fara út í of mikil smáatriði þá var mikið af áverkum á líkama hennar. Fötin hennar voru öll tætt,“ sagði Don Aaron, talsmaður lögreglunnar.
„Við getum ekki tjáð okkur um tengsl þeirra á þessum tímapunkti. En ef einhver er að hlusta sem þekkir Yhoana eða fjölskyldu hennar og hefur einhverjar grunsemdir um einhvern tengdan fjölskyldunni vinsamlegast tilkynnið okkur það,“ sagði Kautzman.