Flugmaður þyrlu, sem notuð var til að slökkva skógarelda sem geisa í Portúgal, lést er þyrlan hrapaði í dag. Var hann sá eini um borð.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var þyrlunni flogið á rafmagnslínu þegar hún var að berjast við skógareldana. Kviknaði þá í henni sem leiddi til dauða flugmannsins.
Flugmaðurinn var með langa reynslu í þyrluflugi og hafði starfað á þyrlu slökkviliðsins frá árinu 2013. Var hann að fljúga yfir Cabril og sleppa vatni úr þyrlunni þegar slysið átti sér stað.
Um 2.000 þorpsbúar hafa verið innlyksa vegna skógareldanna síðustu daga. Eldarnir loga á tveimur stöðum í miðhluta landsins. Lýst hefur verið yfir neyðarástandi á nokkrum svæðum þar sem áfram er spáð heitu og þurru veðri.
Í sumar hefur metfjöldi gróðurelda kviknað í Portúgal að sögn Constanca Urbano de Sousa, innanríkisráðherra landsins. Ráðherrann segir að kenna megi fólki um eldsupptök í flestum tilvikum. Sumir þeirra hafi verið kveiktir viljandi.
Skógareldarnir kviknuðu á þriðjudagskvöld og sóttu í sig veðrið á miðvikudag. Á fimmtudag loguðu þeir umhverfis allt þorpið og enn er verið að berjast við þá.