Þrjátíu og tveir karlmenn voru í dag leiddir fyrir dómara í Tansaníu, en þeim hefur verið gefið að sök að hafa brennt fimm konur lifandi í þeirri trú að þær væru nornir.
Mennirnir eru á aldrinum 18 til 75 ára, en í þeirra hópi eru nokkrir embættismenn Uchama-héraðs, sem staðsett er um 50 kílómetra suðaustur af fjallinu Kilimanjaro. Aðalmeðferð í máli gegn þeim hefst 4. september.
„Í dag sagði saksóknari að mennirnir 32 hefðu tekið þátt í morðunum á fimm konum, með því að hafa barið þær og brennt þær svo til dauða,“ sagði heimildarmaður í samtali við AFP-fréttastofuna.
Sumir mannanna játuðu sekt sína fyrir dómi í dag en aðrir neituðu. Segja mennirnir að konurnar hafi eitrað fyrir öðru fólki.
Það er ekki óalgengt að fólk sem sakað er um að vera nornir sé myrt í Tansaníu. Mannréttindasamtök í landinu hafa áður sagt að um 500 manns séu myrtir fyrir galdra í landinu árlega. Oftar en ekki sé um að ræða eldri konur með rauðsprungin augu sökum eldamennsku.