Málaferli sem óvirkur spilafíkill hefur háð gegn stórri spilavítiskeðju og spilakassaframleiðendum í Ástralíu hefur markað þáttaskil í sögu dómsmála í landinu. Kæran er sú fyrsta sinnar tegundar í Ástralíu.
Stefnandinn, Shonica Guy, segir að spilavítiskeðjan og framleiðandi spilakassanna hafi gefið henni misvísandi skilaboð um vinningslíkur hennar.
Í frétt BBC um málið kemur fram að spilakassinn sem um ræðir hefur að geyma eins konar póker samstæðuleik og ganga spilakassar af þessu tagi gjarnan undir gælunafninu „pokies“ í Ástralíu. Guy fullyrðir að spilakassarnir gefi spilurum óraunhæfar væntingar og brjóti gegn neytendalögum.
Spilavítiskeðjan, Crown, og framleiðandi spilakassanna, Aristocrat, neita öllum ásökunum. Fyrirtaka málsins fór fram í Melbourne í morgun.
Forsvarsmenn Aristocrat neita alfarið að leikir á þeirra vegum sé hannaðir til að ýta undir spilafíkn og fullyrða að allir leikir þeirra heyri undir gildandi lög og reglugerðir.
Óhætt er að fullyrða að veðmálastarfsemi sé landlæg þráhyggja í Ástralíu. Rannsóknir bresku ráðgjafarþjónustunnar H2 Gambling Capital sýna að Ástralir tapa hlutfallslega mestum fjárhæðum á hvern íbúa í hvers kyns veðmálastarfsemi, um 1.100 dollurum árlega, eða sem nemur 120.000 krónum.
Guy segir að hún hafi tapað 14 árum af lífi sínu í spilakössunum. Hún segist ekki vera að sækjast eftir fjárhagslegum skaðabótum með því að fara í mál heldur vill hún tryggja að aðrir spilafíklar lendi ekki í sömu gryfju og hún.
„Okkur hefur verið talið trú um of lengi að við séum einu sökudólgarnir þegar kemur að spilafíkn,“ sagði Guy í samtali við fjölmiðla. Með málaferlinu vill hún sýna að spilakassarnir séu blekkjandi og hannaðir til að gera fólk háð.
Mál hennar byggir á hönnun leiksins og segja Guy og lögfræðingar hennar að leikurinn sé settur þannig upp að vinningslíkurnar séu ofmetnar.
Tim Costello, talsmaður samtaka um spilafíkn, segir í samtali við The Sydney Morning Herald að baráttu Guy megi líkja við baráttu Davíðs við Golíat. Spilakassaiðnaðurinn hafi álíka áhrif í Ástralíu líkt og samtök skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum.