Stjórnvöld í Suður-Kóreu hvöttu í dag Bandaríkjamenn til að reyna að minnka spennuna á milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna. Utanríkisráðherra Norður-Kóreu sakaði Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrr í dag um að lýsa yfir stríði á hendur Norður-Kóreu.
„Það er mjög líklegt að Norður-Kórea muni ögra okkur enn frekar,“ sagði Kang Kyung-wha, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, en hann er staddur í Bandaríkjunum.
„Það er mikilvægt að við, Kórea og Bandaríkin í sameiningu, finnum lausn á þessum vanda til að koma í veg fyrir frekari spennu eða hernaðaraðgerðir sem gætu farið úr böndunum,“ bætti ráðherrann við.
Spenna milli ráðamanna í Norður-Kóreu og Bandaríkjunum hefur farið stigvaxandi undanfarið og þeir Trump og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafa ekki sparað stóru orðin í garð hvor annars.