Ásakanirnar komu Trump ekki á óvart

Donald Trump, Bandaríkjaforseti.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að ásakanir á hendur kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein um kynferðislega áreitni gagnvart konum undanfarna þrjá áratugi hafi ekki komið sér á óvart.

„Ég hef þekkt Harvey Weinstein í mjög langan tíma. Ég var alls ekki undrandi á að sjá þetta,“ sagði Trump þegar hann var spurður út í fregnirnar.

Repúblikanar hafa vakið aukna athygli á þessu hneykslismáli vegna þess að Weinstein hefur verið mikill stuðningsmaður frambjóðenda demókrata í gegnum tíðina.

Margir þingmenn úr röðum demókrata hafa heitið því að skila þeim framlögum sem Weinstein hefur gefið til góðgerðarmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert