Einn lést og tveir eru særðir eftir árás við Parsons Green neðanjarðarlestastöðina í London. BBC hefur eftir Scotland Yard að ekki sé talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Árásin átti sér stað skömmu eftir hálfátta í kvöld og hefur árásarmaðurinn en ekki verið handtekinn, en 30 manns særðust í hryðjuverkaárás á lest við Parsons Green stöðina í síðasta mánuði.