Bandarískur flutningabílstjóri á yfir höfði sér lífstíðar fangelsisdóm fyrir að smygla fólki. Hann hefur játað að hafa keyrt flutningabíl með ólöglega innflytjendur frá Mexíkó til Bandaríkjanna. 10 manns létust í miklum þrengslum í bílnum þar sem súrefni var af skornum skammti og engin loftkæling. Í flutningabílnum voru um 200 manns frá Mexíkó og Gvatemala.
Í júlí var bifreiðin stöðvuð og upp komst um athæfið. Dómur verður kveðinn upp í máli James Matthew Bradley sem er 61 árs gamall í janúar á næsta ári.
Starfsmaður verslunarinnar Walmart í borginni San Antonio, nálægt landamærum Mexíkó, tilkynnti lögreglunni um flutningabílinn sem hafið verið lagt á bílaplani verslunarinnar. Bradley var handtekinn á staðnum.
Í bílnum voru 39 ólöglegir innflytjendur. Þeir greindu lögreglunni frá því að þeir hafi skipst á að anda að sér súrefni í gegnum eitt lítið gat á bílnum. Á leiðinni leið yfir nokkra þeirra af súrefnisskorti og hita. Átta létust í bílnum en tveir létust skömmu seinna á sjúkrahúsi.
„Þetta mál minnir okkur á að græðgi drífur smyglarana áfram sem huga lítið að heilsu og velferð fólksins sem það smyglar.“ Þetta sagði Shane Folden hjá heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna í tilkynningu.
Í september var Pedro Silva Segura, sem er 47 ára gamall, ákærður fyrir að vera samsekur um smygl og samsæri. Hann er óskráður innflytjandi sem býr í borginni Laredo sem er við landamæri Texas.