27 ára Pólverji stakk á föstudag konu til bana í verslunarmiðstöð í borginni Stalowa Wola í Póllandi og særði níu til viðbótar.
Árásina gerði hann á annatíma síðdegis í dag og afvopnuðu aðrir gestir verslunarmiðstöðvar manninn áður en lögregla kom á vettvang. Pólska lögreglan segist ekki telja að um hryðjuverk sé að ræða.
„Maðurinn hegðaði sér einkennilega og stakk fólk í bakið. Einn hinna særðu lést og níu aðrir hljóta nú aðhlynningu á sjúkrahúsi við sárum sínum,“ að því er segir í yfirlýsingu lögreglu.
Nefnir lögregla manninn sem Konrad K. og hefur hann ekki komið við sögu lögreglu áður, var ekki undir áhrifum áfengis og er nú til rannsóknar hvort lyf leynist í blóði hans.
„Eins og er teljum við árásina hvorki tengjast hryðjuverkum né annarri hugmyndafræði,“ sagði Krzysztof Pobuta, lögreglustjóri í héraðinu, við pólsku PAP-fréttastofuna.
Kvaðst hann telja árásarmanninn þjást af þunglyndi.