Tveir eru særðir eftir skotárás í Enskede-hverfinu í suðurhluta Stokkhólms seint í gærkvöldi. Lögreglan gat í morgun ekki gefið upplýsingar um ástæðuna á bak við árásina eða nánari upplýsingar um hana.
Enginn hefur enn verið handtekinn.
„Ekkert nýtt hefur komið í ljós eftir skotárásina,“ sagði Lars Byström, talsmaður lögreglunnar í Stokkhólmi, við Aftonbladet.
Tvær manneskjur sáust yfirgefa árásarstaðinn á reiðhjólum.
Tæknideild lögreglunnar var á staðnum í alla nótt.