Ekkja bandarísks hermanns segir Donald Trump Bandaríkjaforseta ekki hafa munað nafn manns hennar þegar hann hringdi í hana til að lýsa yfir samúð sinni.
Myeshia Johnson, ekkja hermannsins La David Johnson sem var drepinn í hernaðaraðgerðum í Níger 4. október, sagði ABC-sjónvarpsstöðinni að það sem hefði sært sig hvað mest var að forsetinn hafi átt erfitt með að muna nafn hans.
„Ef maðurinn minn er þarna úti að berjast fyrir land okkar og hann hættir lífi sínu fyrir land okkar, hvers vegna getur þú ekki munað nafn hans,“ sagði Johnson.
Áður hefur Frederica Wilson, þingmaður demókrata, greint frá því að hún hafi heyrt Trump segja við ekkjuna að hermaðurinn hafi alveg vitað „hvað hann var að koma sér út í“. Wilson var stödd í bíl með ekkjunni og fjölskyldu hennar þegar forsetinn hringdi.
Johnson sagði ABC að símtalið frá Trump hefði grætt sig, „af því að ég var mjög reið yfir tóninum sem hann notaði. Hann var með skýrslu mannsins míns fyrir framan sig og það var þá sem hann sagði La David. Ég heyrði hann reka í vörðurnar við að reyna að muna nafn mannsins míns,“ sagði hún.