Flúði af geðdeild fyrir fimm árum

David Kelley varð 26 kirkjugestum að bana í Texas á …
David Kelley varð 26 kirkjugestum að bana í Texas á sunnudag. AFP

Árásarmaðurinn sem varð 26 kirkjugestum að bana í Texas á sunnudag flúði af geðdeild árið 2012.

Þetta kemur fram í gögnum lögreglunnar í El Paso. Í frétt BBC kemur fram að lögreglufulltrúar sem handtóku Devin Kelley þegar hann flúði af geðdeildinni fyrir fimm árum segi að hann hafi „stofnað sjálfum sér og öðrum í hættu“.

Kelley var sendur á geðdeild á sjúkrahúsi eftir að hafa verið stefnt fyrir herrétt fyrir að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína og stjúpson ofbeldi.

Í skýrslu lögreglunnar kemur einnig fram að Kelley hafi hótað yfirmönnum sínum í hernum lífláti.

Að sögn yfirvalda hefði stefnan átt að koma í veg fyrir að Kelley gæti átt skotvopn. Hann er sagður hafa gefið rang­ar upp­lýs­ing­ar þegar hann fyllti út skjöl í tengsl­um við kaup hans á Ru­ger-árás­arriffli í apríl 2016 í versl­un í San Ant­onio sem hann síðan notaði við fjölda­morðin. Sagðist hann eiga fyr­ir nokk­ur vopn sem hann hefði keypt í Texas og Col­orado.

Kelley var vistaður á geðdeild í Santa Teresa í New Mexico, um 160 kílómetra frá borginni El Paso. Sá sem tilkynnti um hvarf hans segir að Kelley hafi „glímt við andleg veikindi“.

Seinna sama ár játaði Kelley fyrir dómstóli í hernum að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína og stjúpson ofbeldi. Hann var dæmdur til eins ár fangelsisvistar í herfangelsi.

Rannsókn árásarinnar í kirkju bapt­i­sta í bæn­um Sut­herland Springs er enn í fullum gangi. Rannsóknarmenn alríkislögreglunnar reyna nú að ná gögnum úr síma Kelley í þeim tilgangi að varpa frekara ljósi á hvað honum gekk til með árásinni.

26 krossum hefur verið komið fyrir í bænum Sutherland Springs …
26 krossum hefur verið komið fyrir í bænum Sutherland Springs til að minnast fórnarlambanna sem létu lífið í skotárásinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert