Paddles, köttur Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, er dáinn eftir að hafa orðið fyrir bíl að því er BBC greinir frá. Paddles hafði öðlast töluverða frægð sem „fyrsti köttur“ og átti sér þúsundir fylgjenda á Twitter, þar sem hann tísti sem Paddles@FirstCatofNZ.
Hafa notendur samfélagsmiðla verið ötulir við að lýsa yfir sorg sinni á dauða Paddles, eftir að talsmaður ráðherra staðfesti dauða hans.
V sad PR Guy here.Tysm for loving Paddles, the whole world will mourn her.Not bad for a lil SPCA puss. #PrrpForever https://t.co/B5MZvcUiDU
— Paddles (@FirstCatofNZ) November 7, 2017
Paddles kom úr kattaathvarfi og vakti athygli að hann var með auka klær sem mest minntu á fingur. Clarke Gayford, maki forsætisráðherra, lýsti ævintýrum Paddles í forsætisráðherrabústaðnum í grein á vefnum Spinoff, en Paddles gerði m.a. sitt besta til að trufla símtal Ardern við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Wow. ❤️🙏🏻 https://t.co/jERTofPgZm
— Paddles (@FirstCatofNZ) November 8, 2017
Voru þeir sem vildu minnast Paddles hvattir til að láta fé af hendi rakna til dýraverndarsamtaka.