Barn fannst látið í úthverfi Stokkhólms, Tullinge, í morgun og kona var flutt á sjúkrahús. Lögreglan rannsakar málið sem morð.
Gert Rosvall, varðstjóri í lögreglunni í Södertörn, segir málið í rannsókn en hann geti ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu í samtali við Aftonbladet.
Samkvæmt Expressen er lögreglan að störfum í íbúð í Tullinge en að sögn Lars Byström, yfirlögregluþjóns í Stokkhólmi, er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Verið sé að rannsaka hvað gerðist.