Angela Merkel, kanslari Þýskalands og leiðtogi Kristlegra demókrata, telur að það sé betra að efna til þingkosninga að nýju frekar en að stýra minnihlutastjórn. Engin hefð er fyrir slíkum ríkisstjórnum í Þýskalandi.
Viðræður Kristilegra demókrata, Frjálslyndra og Græningja um nýja stjórn runnu út í sandinn. Kosið var síðast í lok september og hefur síðan verið reynt að mynda ríkisstjórn.
Merkel hefur verið kanslari í tólf ár en hún sagðist í samtali við þýska fjölmiðla í dag vera full efasemda um að stýra minnihlutastjórn.
Forseti Þýskalands, Frank-Walther Steinmeier, hefur skorað á leiðtoga stjórnmálaflokkanna að reyna áfram að mynda ríkisstjórn en þetta er í fyrsta sinn frá lokum seinni styrjaldar sem ekki hefur tekist að mynda stjórn í Þýskalandi á tveimur mánuðum að kosningum loknum.