Myndband af fílsunga að sveifla rana sínum, rétt eins og hann sé að reyna að átta sig á til hvers hann sé notaður, nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum þessa dagana.
Fílsunginn er mjög ungur og gengur um í hópi fullorðinna dýra er hann fer allt í einu að sveifla rana sínum til og frá.
Fílar nota rana sína til að anda. Á þeim eru tvær nasaholur. Þeir nota þá einnig til að sjúga upp vatn sem þeir svo sprauta upp í munninn á sér. Þeir geta sogið allt að átta lítra af vatni upp í ranann í einu.
Myndbandið er ekki nýtt. Það var tekið upp í Kruger-þjóðgarðinum í Suður-Afríku í fyrra og var þá birt í nokkrum fjölmiðlum. Nú hefur nýju lífi verið blásið í það og það aftur komið í umferð í netheimum.