Tölvuverð ofankoma hefur verið yfir hluta Evrópu undanfarna daga og hefur m.a. valdið því að loka hefur þurft skólum í Bretlandi og Hollandi, auk þess sem snjórinn hefur valdið miklum truflunum á samgöngum en búist er við því að það haldi áfram að snjóa.
Aflýsa þurfti um fjórðungi af öllum áætlunarflugum frá Heathrow-flugvelli í London, þá voru tafir á flugi hundruða véla frá Schiphol-flugvelli í Amsterdam og öllu flugi frá hollenska Eindhoven-flugvellinum var aflýst.
Reuters-fréttastofan segir ofankomu í Hollandi hafa leitt til þess að skólum og fyrirtækjum hafi verið lokað, auk þess sem hollensk yfirvöld hafi hvatt fólk til að halda sig heima við.
Hollenska veðurstofan KNMI sendi frá sér viðvörun um „verulega hættulegar“ aðstæður um land allt, en ísing var á vegum og lestarteinum, auk snjókomunnar.
Þá gaf veðurstofa Frakklands út viðvaranir á yfir 30 svæðum í dag en spáð var hávaðaroki og snjókomu.