Dómstóll á Indlandi sakfelldi í dag karlmann fyrir að hafa nauðgað og myrt laganema í hnífaárás í bænum Perumbavoor í lok apríl 2016. Blóðugt lík fórnarlambsins fannst á heimili þess og voru tæplega 30 stungusár á því. Var líkið mjög illa farið.
Maðurinn, Muhammed Ameerul Islam, var sakfelldur fyrir morð, nauðgun og húsbrot. Dómur verður kveðinn upp yfir honum á morgun en saksóknarar hafa farið fram á dauðarefsingu. Konan sem var myrt tilheyrði lægstu stétt Indlands og bjó ein með móður sinni sem var ekki heima þegar árásin átti sér stað. Var hún í laganámi sem fyrr segir.
Það tók lögregluna tæplega tvo mánuði að hafa uppi á Islam. Saksóknarar segja að árásin hafi verið að tilefnislausu en fjölmiðlar hafa fullyrt að um einhvers konar hefnd hafi verið að ræða vegna ágreinings. Málið leiddi til mikilla mótmæla.