Sviðsettu árás til að losna við manninn

Frá Indlandi.
Frá Indlandi. AFP

Par á Indlandi hefur verið sakað um að hafa myrt eiginmann konunnar og í framhaldinu hafi maðurinn farið í lýtaaðgerð til að koma í stað hins myrta eiginmanns. 

Sýru var hellt yfir andlit kærasta konunnar, Rajesh Ajjakolu, í sviðsettri árás. Áætlun þeirra sneri síðan að því að segja að eiginmaður Swati Reddy hefði breyst eftir sýruárásina.

Foreldrar mannsins, Sudhakar Reddy, trúðu því að sonur þeirra hefði gjörbreyst við sýruárásina og borguðu allan sjúkrakostnað. Bróðir hans grunaði hins vegar að maðkur væri í mysunni og kvartaði við lögreglu. Fingraför voru rannsökuð og við það komst svindlið í ljós.

Reddy hefur verið handtekinn og lögregla sagði í samtali við BBC að Ajjakolu yrði einnig handsamaður þegar hann hefur jafnað sig í andlitinu og verður útskrifaður af spítala.

Talið er að Sudhakar hafi verið myrtur 26. nóvember en lík hans hefur ekki fundist. Lögregla segir að konan hafi játað að parið hafi myrt hann.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert