„Allt í einu heyrðum við mikinn hávaða og mér leið eins og við værum á leið niður brekku,“ sagði Chris Karnes. Hann var farþegi lestarinnar sem steyptist af spori sínu og niður á hraðbraut í Washington-ríki í Bandaríkjunum.
Ekki er ljóst hversu margir létust í slysinu en 78 farþegar voru í lestinni auk fimm manna áhafnar.
Karnes segir að farþegar hafi skollið á sætin fyrir framan sig. „Síðan brotna rúðurnar og við stöðumst. Ljósin slokkna og allir öskra,“ sagði Karnes.
Slysið varð klukkan hálf átta að staðartíma en lestin var á leið frá Seattle til Portland. Lestin var á 130 kílómetra hraða á klukkustund.