Trump sigurreifur í Hvíta húsinu

Trump og félagar í stuði.
Trump og félagar í stuði. AFP

Donald Trump var í skýjunum þegar hann fagnaði ásamt leiðtogum repúblikanaflokksins í Hvíta húsinu í dag. Bandaríkjaþing samþykkti í morgun mikl­ar breyt­ing­ar á skatt­kerfi lands­ins en breyt­ing­arn­ar eru þær mestu í meira en þrjá ára­tugi. 

Frumvarpið er fyrsta stóra málið sem Trump hef­ur bar­ist fyr­ir og hef­ur farið í gegn­um þingið.

„Við gerum Bandaríkin frábær aftur,“ sagði Trump. Gagn­rýn­end­ur segja að breyt­ing­arn­ar komi þeim of­ur­ríku best en stuðnings­menn segja að skatt­ar muni lækka á fyr­ir­tæki, lít­il fyr­ir­tæki sem og aðra og þetta þýði auk­inn hag­vöxt.

„Við bættum öll met,“ sagði Trump. Hann þakkaði samflokksmönnum sínum fyrir að hafa komið málinu í gegn en hann sagði frumvarpið „mestu skattalækkanir í sögu Bandaríkjanna.“

Paul Ryan, leiðtogi re­públi­kana í full­trúa­deild­inn, hrósaði Trump fyrir „frábæra leiðtogahæfileika.“ 

Fulltrúar í starfsliði forsetans vonast til þess að samþykktin auki vinsældir forsetans, sem hafa verið afar litlar, samanborið við forvera hans í starfi. 

Trump mun að minnsta kosti halda glaðir inn í jólafrí, en hann hyggst eyða jólunum á golf-hóteli í Flórída, sem er einnig þekkt sem vetrarútgáfa Hvíta hússins. 

Hvað Trump mun svo taka sér fyrir hendur á nýju ári verður tíminn að leiða í ljós. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert