Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fordæmir forsetakosningarnar sem fram fóru í Venesúela í gær og segir þær falskar. Sitjandi forseti, Nicolas Maduro, fór með sigur af hólmi og komu úrslitin ekki á óvart þar sem andstæðingar hans báðu fólk um að sniðganga kosningarnar og krefjast nýrra kosninga síðar á árinu.
„Kosningarnar í Venesúela voru falskar - hvorki frjálsar né sanngjarnar. Ólögmæt niðurstaða þessa falska ferlis er enn eitt klúðrið fyrir annars lýðræðislega hefð í Venesúela,“ segir í yfirlýsingu frá Pence. Kjörsókn var aðeins 46% í gær en niðurstaða kosninganna er að Maduro fékk 68% atkvæða og verður forseti Venesúela til ársins 2025.
Pence segir að bandarísk stjórnvöld velti fyrir sér þeim möguleika á að innleiða nýjar refsiaðgerðir gagnvart ríkisstjórn Maduro.
Venesúela er á barmi gjaldþrots og staða almennings skelfileg. Ofurverðbólga, um 13.000%, er í landinu ásamt matar- og lyfjaskorti. Þá er aukin glæpatíðni og skortur á vatni og rafmagni meðal þess sem blasir við íbúum Venesúela.