Obama hneykslast mjög á Trump

Það andar köldu á milli þessara tveggja. Obama segir að …
Það andar köldu á milli þessara tveggja. Obama segir að Trump sé að ljúga að fólki. Mynd úr safni. AFP

Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ásakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að beinlínis ljúga að fólki. Hann gerði alvarlegar athugasemdir við stjórnarhætti og orðræðu forsetans er hann ávarpaði kjósendur í Milwaukee og Detroit í gær.

„Það sem var áður óséð, í það minnsta á síðustu tímum, eru stjórnmálamenn sem hreint út, blygðunarlaust, ítrekað og án þess að svo mikið sem skammast sín ljúga. Skálda hluti frá grunni,“ sagði Obama í ræðu sinni. Þótti ljóst að þetta ætti við Trump, þó að hann passaði að nefna hann ekki á nafn.

Til stuðnings máli sínu nefndi Obama að forsetinn hefði lofað skattalækkunum fyrir millistétt fyrir kosningarnar sem verða í þarnæstu viku, svonefndar miðkjörtímabilskosningar í Bandaríkjunum. Hængurinn á því loforði Trumps var þá sá að honum gæfist aldrei rúm til að efna það enda þingið ekki að störfum fyrr en eftir kosningar.

Það er að vonum hart tekist á um ýmis mál vestanhafs um þessar mundir enda minna en tvær vikur til kosninga. Í þessum kosningum, sem eru alltaf um miðbik kjörtímabils forseta, er kosið um allt mögulegt; allt frá atkvæðagreiðslu um einstök mál til kosningar kjörinna fulltrúa, svo sem dómara.

Hér er myndskeið frá Guardian, hluti ávarps Obama.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert