Liðsmenn Pussy Riot fá hæli í Svíþjóð

Pussy Riot á tónleikum.
Pussy Riot á tónleikum. AFP

Tveir liðsmanna rússnesku hljómsveitarinnar Pussy Riot hafa fengið pólitískt hæli í Svíþjóð. Fólkið óttaðist handtöku ef það sneri aftur til Moskvu, samkvæmt sænskum fjölmiðlum.

Lus­ine Djany­an og Al­ek­sej Kned­lja­kovskj sóttu um hæli í Svíþjóð árið 2017 og hafa búið á heimili fyrir hælisleitendur í Lindes­berg ásamt tveimur börnum sínum.

Þau sögðust hafa fengið líflátshótanir í Rússlandi vegna aðgerða þeirra en tvær úr hljómsveitinni voru hand­tekn­ar og fang­elsaðar í Rússlandi árið 2012 fyr­ir óspekt­ir í kirkju í Moskvu.

Fyrst var beiðni þeirra um hæli hafnað en þau áfrýjuðu niðurstöðunni.

„Ég er mjög ánægð að börnin mín muni geta alist upp í öruggu umhverfi, sérstaklega þegar horft er til þess sem gengur á í Rússlandi,“ sagði Djanyan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert