„Heilagur andi“ kom í veg fyrir hraðasekt

Himneskt inngrip dúfu eða hrein tilviljun? Ökumaðurinn slapp að minnsta …
Himneskt inngrip dúfu eða hrein tilviljun? Ökumaðurinn slapp að minnsta kosti við hraðasekt þar sem hvíta dúfan, eða heilagur andi samkvæmt Biblíunni, hylur andlit ökumannsins. Ljósmynd/Lögreglan í Viersen/Facebook

Ökumaður í Þýskalandi slapp með skrekkinn nýlega þegar hvít dúfa breiddi út vængi sína og huldi andlit ökumannsins fyrir hraðamyndavélum.

Í glaðværri yfirlýsingu frá lögreglunni í Viersen segir að kannski hafi afskipti „hins heilaga anda“ alls ekki verið tilviljum og vísar þannig í dúfuna sem tákn um heilagana anda í kristinni trú.

„Við tökum táknið gilt og leyfum ökufantinum að fara í friði,“ segir í tilkynningu lögreglunnar, sem vonar samt sem áður að ökumaðurinn taki „skilaboðunum að ofan“ og aki í takt við aðstæður í framtíðinni.

Það er svo sem ekki um gríðarlegan ökufant að ræða, en ökumaðurinn var á 54 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar. Þar sem dúfan hylur andlit hans og einungis er hægt að bera kennsl á ökutækið mun hann að öllum líkindum sleppa við 105 evru sektina, eða sem nemur tæpum 15.000 krónum, þar sem ekki er hægt að bera kennsl á þann sem situr á bak við stýrið.

Lögreglan íhugaði einnig að sekta dúfuna, sem var sjálf á alltof miklum hraða, en erfiðlega hefur gengið að hafa uppi á henni. Lögreglan telur að líklega hafi hún verið að koma sér á áfangastað fyrir Hvítasunnu, en lögreglan sé ekki í annarri stöðu en að sýna henni miskunn.

Frétt BBC

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert