Lofttæmissprengja sögð hafa banað 70 hermönnum

Úr myndskeiði sem sagt er sýna sprenginguna.
Úr myndskeiði sem sagt er sýna sprenginguna. Skjáskot/Nexta

Rússneski herinn beitti lofttæmissprengju í innrás sinni í Úkraínu í gær. Þetta fullyrti Oksana Markaróva, sendiherra Úkraínu í Washington, á blaðamannafundi í gærkvöldi eftir að hafa átt fund með bandarískum þingmönnum.

Lofttæmissprengja virkar þannig að hún tekur inn súrefni til að mynda kröftuga sprengingu með afar háu hitastigi. Sprengibylgjan sem fylgir henni varir því mun lengur en eftir hefðbundna sprengju.

„Þeir notuðu lofttæmissprengjuna í dag,“ sagði Markaróva í gær.

Mögulega stríðsglæpur

Sprengjan eyddi úkraínskri herstöð í borginni Oktyrka í Sumí-héraði og varð sjötíu hermönnum að bana, að sögn stjórnvalda í landinu.

Jen Psaki, talsmaður Hvíta hússins, sagði aðspurð á blaðamannafundi að þar hefði ekki fengist staðfesting á notkun sprengjunnar.

„Við höfum séð frásagnirnar. Ef þetta er satt, þá er þetta mögulega stríðsglæpur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka